Skrifað var undir samkomulag milli Úrval Útsýnar og knattspyrnuráðs ÍBV um samstarf á komandi árum. Úrval Útsýn hefur ávallt þjónustað Eyjamenn vel og ÍBV hefur nýtt sér þjónustu þeirra við keppnis- og æfingaferðir í gegnum tíðina. Úrval Útsýn verður því enn sýnilegra í Eyjum og mun styrkja ÍBV í þeirri baráttu sem er framundan.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Þorstein Guðjónsson forstjóra Úrval Útsýnar handsala samninginn við Trausta Hjaltason framkvæmdastjóra knattspyrnuráðs.