Gleði, tár og titlar.

Fótbolti - Frábær Heimildarmynd um ÍBV fengið góðar viðtökur

05.des.2010  13:39
Síðastliðin föstudag var frumsýnd heimildarmyndin „Gleði, tár og titlar“ um meistaralið ÍBV í knattspyrnu árin 1997 og 1998. Myndin er unnin af Sighvati Jónssyni Eyjamanni og fjölmiðlamanni og er um 2 klst. að lengd.  Ingi Siguðsson ásamt góðum hópi manna stóð að gerð myndarinnar og eiga þeir félagar miklar þakkir skyldar fyrir framlag sitt.
 
Í  myndinni er farið er yfir forsögu þess að ÍBV tókst að landa tveimur Íslandsmeistaratitlum og einum bikarmeistaratitli auk annarra verðlauna á tímabilunum tveimur. Þar koma margir leikmenn og þjálfarar við sögu, og síðast en ekki síst, fögn.
 
Að frumsýningu lokinni fór myndin í sölu og voru viðtökurnar framar vonum. Enda er myndin góð heimild um frábæran tíma og eitthvað sem allir ÍBV arar ættu að eiga. Myndin er líka sniðug í jólapakkan.
 
Hægt er að nálgast myndina á skrifstofu ÍBV í Týsheimilinu, einnig geta  þeir sem eru búsettir íhöfuðborginni sent tölvupóst á trausti@ibv.is og tryggt sér eintak. Myndin kostar 3000 kr.
 
Upplag myndarinnar er takmarkað og því um að gera að tryggja sér eintak strax