ÍBV spilaði sinn fyrsta æfingaleik fyrir komandi tímabil í morgun gegn HK í Kórnum Kópavogi. ÍBV sigraði leikinn örugglega 4-2. Nýjasti leikmaður ÍBV Guðmundur Þórarins skoraði í sínum fyrsta leik með ÍBV en hann skrifaði undir í gærkvöldi.
Gauti Þorvarðarson skoraði tvö mörk fyrir ÍBV í dag, Guðmundur Þórarins opnaði markareikninginn sinn fyrir ÍBV og skoraði, ásamt Arnóri Eyvari sem skoraði eitt mark fyrir ÍBV í dag.