Fótbolti - Arnór Eyvar framlengir við ÍBV

02.nóv.2010  13:16
Eyjapeyjinn Arnór Eyvvar Ólafsson framlengdi samning sinn við ÍBV í morgun um tvö ár. Arnór er 21 ára og spilar sem hægri bakvörður. Arnór spilaði 10 leiki með ÍBV í Pepsi-deild karla í sumar.
Arnór hefur spilað 75 leiki fyrir ÍBV í meistaraflokki og skorað í þeim 2 mörk. Arnór spilar því með ÍBV næstu tvö tímabilin og hafa því hann og Anton Bjarnasson báðir framlengt við ÍBV og spila með þeim næsta sumar.