Yngri flokkar - Eyjapeyjar og pæjur frá ÍBV á landsliðsæfingum

27.okt.2010  18:39
Ungmennalandslið KSÍ æfa um helgina og þar verður Sóley Guðmundsdóttir á ferðinni með U-19 liðinu og Sigríður Lára Garðarsdóttir og Svava Tara Ólafasdóttir verða með U-17 landsliðinu.
Óskar Elías Zoega Óskarsson var einnig um síðustu helgi boðaður á úrtaksæfingar U-17 landsliði KSÍ.
Í handboltanum eru fjórir á leið á æfingar um helgina, Vignir Stefánsson var valinn í úrtakshóp U-21, Theodór Sigurbjörnsson í U-19 og þeir Dagur Arnarsson og Guðmundur Tómas Sigfússon í U-15.
ÍBV-íþróttafélag óskar þessu unga og efnilega fólki velgengni á æfingunum.