Heimir náði frábærum árangri með ÍBV í sumar en liðið endaði í 3. sæti og var í titilbaráttu allt síðstu mínútu í lokaumferðinni. Liðinu var spáð 10. sæti en Heimir setti þau markmið að ná Evrópusæti sem ÍBV náði að tryggja sér í 20. umferð í Pepsi deildinni.
Frábær tíðindi fyrir ÍBV sem ætlar sér stóra hluti að ári. Heimir sagði að undirskrift lokinni að markmið hvers þjálfara væri að gera betur en síðast.