Yngri flokkar - Glæsilegur árangur hjá 5.flokki karla í handbolta.

12.okt.2010  13:57
Um síðustu helgi fór fram í Kópavogi fyrsta mót vetrarins hjá 5.flokki karla yngra ári í handbolta. Mótafyrirkomulagið hjá þessum flokki er þannig að fram fara fimm mót yfir veturinn og það lið sem er með besta samanlagðan árangur úr þeim stendur uppi sem Íslandsmeistari.
Skemmst er frá því að segja að A-lið ÍBV stóð sig frábærlega og endaði í öðru sæti í efstu deild. Strákarnir byrjuðu mótið af miklum krafti og unnu Hauka í fyrsta leik 16-5, síðan unnu þeir HK 12-11 og Þrótt einnig 12-11. Þá var komið að hreinum úrslitaleik við FH en bæði liðin voru búin að vinna alla sína leiki. ÍBV spilaði fyrri hálfleikinn mjög vel og var yfir í hálfleik 6-4 en í seinni hálfleik seig á ógæfuhliðina og leikurinn tapaðist 7-11. Seinasti leikurinn var svo við Stjörnuna og tapaðist hann 14-17 en hann skipti litlu máli því að annað sætið var tryggt. Strákarnir stóðu sig allir frábærlega, varnarleikurinn og góð markvarsla var aðall liðsins og síðan skiptust mörkin nokkuð jafnt á alla útileikmenn liðsins.
 
B-lið ÍBV lenti í þriðja sæti í sinni deild. Þeir unnu tvo leiki og töpuðu tveimur. Þeir unnu HK 11-10 og KA 13-6 en töpuðu fyrir Þór 7-9 og Gróttu 9-13. Gaman var að fylgjast með leikmönnum liðsins og var baráttan og leikgleðin í fyrirrúmi.
 
Þessi byrjun lofar góðu og greinilegt að mikils er að vænta af þessum strákum í framtíðinni.