ÍBV og Keflavík eigast við í síðastu umferð Pepsídeildarinnar í fótbolta n.k. laugardaginn 25. september kl. 14:00 í Keflavík. Óhætt er að segja að mikil spenna verði í lokaumferðinni en þrjú lið eiga möguleika á að hampa titlinum.
Farið verður með Herjólfi kl. 9:00 á laugardagsmorgni frá Vestmannaeyjum til Landeyjarhafnar, þaðan verður haldið með 70 manna rútu til Keflavíkur. Herjólfur siglir svo til baka með stuðningsmenn kl. 22:30 frá Landeyjarhöfn.
Eyjamenn munu hittast á Top of the Rock sem er staðsett í Vallarhverfinu í Keflavík (Grænásbraut 920). Áætlað er að rútan verði þar um 12:00 Heimir þjálfari ásamt fylgdarliði mun mæta á svæðið kl. 12:30 og tala við stuðningsmenn.
Miðaverð í þesssa ferð er 5000 kr. (Herjólfur, rúta og miði á leikinn).
Hægt er að bóka sig í ferðina með því að senda póst á trausti@ibv.is eða hringja á skrifstofu ÍBV S: 481-2060. Greiða þarf miðan í Týsheimilinu milli kl. 16:00 og 18:00 á fimmtudaginn (23. Sept.).
Takmarkað miðaframboð og skráningafrestur til kl. 18:00 á fimmtudag.
ÁFRAM ÍBV!