Herjólfur hefur ákveðið að fresta seinni ferðinni til klukkan 20:15 á fimmtudaginn vegna leiks ÍBV og Selfoss. Eyjamenn ættu því að komast heim til sín eftir leikinn. Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar á fimmtudaginn. Leikurinn fer fram klukkan 17:15 á Selfossvelli.