ÍBV heimsækir í dag vini sína á Suðurlandinu, liðið siglir með Herjólfi og heldur síðan á Hellu þar sem æfingabúðum með þjálfurum og leikmönnum ÍBV verður slegið upp kl. 14:00. Jón Ólafur Daníelsson þjálfari mfl. kvenna og Heimir Hallgrímsson þjálfari mfl. karla munu stýra æfingunum ásamt leikmönnum ÍBV.
KFR mun svo grilla pylsur fyrir manskapinn áður en viðureign KFR og ÍBV mun fara fram kl. 16:00 á Hellu.
Þetta er liður í því að auka tengslin milli félagana, og einnig vekja aukinn áhuga ungra knattspyrnuiðkanda á Suðurlandinu.
Vitað er um mikinn áhuga Rangeyinga á leiknum og vonandi mæta sem flestir og taka þátt í þessum skemmtilega degi.
Við minnum svo á næsta heimaleik ÍBV sem er gegn KR sunnudaginn 12. september, en nú fer hver að verða síðastur að ná sér í miða í Herjólf.