Baráttan heldur áfram hjá strákunum og núna fer liðið í Árbæinn og leikur gegn Fylkismönnum.
Leikurinn hefst kl. 18:00 og eru Eyjamenn hvattir til að mæta og styðja strákana í þessari erfiði toppbaráttu. Nú fer hvert stig að verða gulls í gildi og um að gera að standa saman með strákunum. Góður stuðningur var á síðasta heimaleik og eru strákarnir staðráðnir í að bæta upp fyrir erfitt tap gegn Grindavík.
Eyjaliðið er jú eitt af mjög fáum landsbyggðarliðum af þeim 24 liðum sem eru í efstu tveimur deildunum, erum við ákaflega stolt af því og brýnum nú sverðið og höldum stoltir út í bardagan gegn Fylkismönnum á sunnudaginn.
Áfram ÍBV stöndum saman sumarlag!