Fótbolti - 900 Grillhús og ÍBV bjóða upp á fríar pulsur og pepsí fyrir leikinn á sunnudag.

19.ágú.2010  18:44
ÍBV tekur á móti Grindavík í PEPSI-deild karla á sunnudaginn kl 18:00. Af því tilefni ætlar ÍBV ásamt Geira og hans fólk að gefa pylsur og pepsí á planinu við hlið 900 Grillhús(gamla Axel Ó) fyrir leikinn. Sérstök ÍBV tilboð verða á mat og drykk. Fjörið byrjar klukkan 16:00.
Haldið verður svo á leikinn sem byrjar klukkan 18:00 og hvetjum við fólk að mæta tímalega á völlinn og styðja topplið ÍBV áfram í toppbaráttunni. Stuðingsmenn eru hvattir að mæta í hvítu og gera allt vitlaust i stúkunni.
 
Fólk upp á landi er hvatt til að mæta á leikinn og nýta nýju samgönguleið okkar Landeyjahöfn en hægt er fara þrjár ferðir frá Landeyjahöfn á sunnudaginn klukkan 10:30, 13:30 og 16:30 og svo er hægt að fara frá Eyjum upp í Landeyjahöfn klukkan 21:00
 
ÁFRAM ÍBV!!