ÍBV tekur á móti Keflvíkingum á Hásteinsvelli kl. 19:15 næstkomandi fimmtudag. Leikurinn er sá fyrsti af fimm heimaleikjum í röð. Það er gríðarlega mikilvægt að strákarnir byrji þá törn vel og mæti grimmir til leiks. Stuðningurinn í síðasta heimaleik var frábært og er vonandi að það haldi áfram.
Þess má geta að Heimir Hallgrímsson þjálfari liðsins var valinn besti þjálfarinn í umferðum 1-8 í deildinni á Stöð2 sport og Andri Ólafsson var leikmaður 10. umferðar í deildinni. Við óskum þeim félögum kærlega til hamingju með það!
ÁFRAM ÍBV!!!