Gefið var út eftir síðasta leik að leikmaðurinn knái James Hurst að hann væri að spila sinn síðasta leik með ÍBV á tímabilinu. James fór út til Portsmouth þar sem æfingar tímabilið hjá þeim er að hefjast. Portsmouth hafa sent James Hurst aftur til Vestmannaeyja og ætti að ná að spila að leiknum gegn Fylki 29. ágúst. Enskur félagaskiptagluggi lokar 1. september.
James hefur staðið sig frábærlega í sumar og eru þetta því gleði fréttir fyrir ÍBV sem eru í toppbaráttu í deildinni og ætla sér greinilega að fara langt í sumar.
James kemur til landsins á laugardaginn og ætti að vera tilbúinn í leikinn gegn Stjörnunni á sunnudaginn 4. júlí en leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Leikurinn verður klukkan 16.00. En við hvetjum alla að mæta á leikinn á sunnudaginn og halda áfram frábærum stuðningi við liðið.
ÁFRAM ÍBV