Leikmenn og stjórn ÍBV vill koma þökkum til stuðningsmanna ÍBV þeir voru hreint út sagt frábærir á föstudaginn og sigruðu landher og sjóher Selfyssinga í stúkunni. Selfyssingar voru sannarlega skemmtilegir en stuðningsmenn ÍBV voru frábærir og áttu stóran þátt í góðum sigri á föstudaginn. Ef þetta er það sem koma skal þá er Hásteinsvöllur að breytast í enn stærra vígi fyrir ÍBV!
Næsti leikur er útileikur gegn Stjörnunni næsta sunnudag. Síðan koma fimm heimaleikir í röð, sá fyrsti gegn Keflavík fimmtudaginn 8.júlí!
Áfram ÍBV!!