Kæru stuðningsmenn ÍBV.
Vegna mikillar eftirspurnar og gríðarlegrar stemmningar ætlar stórsveitinn Stallahú í samstarfi við stjórn ÍBV að vera með rútuferðir til Grindavíkur frá Smáralindinni á sunnudag.
Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur í Grindavík og er búist við mikilli stemmningu, því ætla Eyjamenn að svara kallinu og mæta vel gallaðir, hvítir og glaðir til Grindavíkur.
Mæting í Smáralind (Debenhams megin) kl. 14:45 og brottför 15:00 á sunnudag. Leikurinn hefs svo kl. 16:00 í Grindavík.
Þægilegt að skilja bílinn eftir í Smáralind og taka þátt í fjörinu með Stallahú.
Rúta og miði á leikinn á aðeins 2.500 kr. Greiðist í rútunni.
Þeir sem vilja fara með í þessa stórkostlegu ferð eru beðnir um að senda tölvupóst á
trausti@ibv.is eða hringja í Jón Óskar 660-8833.