Yngri flokkar - Mick White kveður ÍBV

20.maí.2010  13:48
Mick White sem þjálfað hefur 4 yngri flokka hjá félaginu frá því í byrjun árs hefur ákveðið að snúa heim á leið. Mick sem að er breti hefur verið að gera góða hluti í yngri flokka starfi félagsins. Hann þarf því miður að snúa heim af persónulegum ástæðum. ÍBV sér á eftir góðum þjálfara þar og þakkar félagið, Mick fyrir sitt góða starf fyrir félagið.