Styrktarkvöldið á Spot Kópvogi miðvikudaginn 31. Mars heppnaðist með eindæmum vel. Kokkanir stóðu heldur betur fyrir sínu ásamt skemmtikröftum kvöldsins sem voru hver af öðrum betri.
Kvöldið sóttu um 100 manns í borðhaldi. Tríkot héldu svo ball eftir miðnætti.
Kokkanir í eldhúsinu töfruðu fram frábæran 4 rétta matseðil sem lék við bragðlaukana, fá þeirr stórt hrós fyrir sitt framlag.
Páll Magnússon var veislustjóri kvöldsins og fékk hana Eddu Björgvins til að rifja upp tíma sína í Vestmannaeyjum til mikillar skemmtunar viðstaddra. Næstur á svið steig Gói skemmtikraftur og var þræl skemmtilegur með syrpuna sína úr Eurovison. Ingó Idol kom svo tók nokkur lög á gítarinn með góðum viðtökum viðstaddra. Buffið stigu á svið með Pétri Jesús í fararbroddi og aldrei klikka þeir Buff bræður á sviði. Bjartmar Guðlaugs mætti auðvitað líka og tók gítarinn á loft og sló í gegn. Hoffman enduðu svo dagskrá kvöldsins og rokkuðu þakið af húsinu og enduðu að sjálfsögðu á slor á skít.
Frábært kvöld hjá peyjunum í meistaraflokki og vonandi orðinn árlegur viðburður. Strákanir halda út til Spánar í æfingarferð yfir páskana til að gera sig tilbúna fyrir komandi átök í Íslandsmótinu.
Leikmenn og stjórn ÍBV vilja koma á framfæri þakklæti til þeirra sem komu af þessu kvöldi og gáfu vinnu sína við þetta frábæra kvöld.