Nú hafa þeir Palli Grétars og Kári Fúsa bæst í hóp landsliðskokka okkar Eyjamanna (Einsa Kalda, Gríms og Sigga Gísla) Nú er um að gera að hafa hraðar hendur og tryggja sér miða fyrir miðvikudagskvöldið á Spot.
Matseðillinn :
Forréttur
Gríms humarsúpa,með sérbökuðum brauðum að hætti Davíðs Arnórs bakara
Milliréttur
Skötuselur í tempura, með grænmetissalsa
Og soyja-limegljáa a-la Siggi í Turninum
Aðalréttur
Nauta rib-eye að hætti Einsa Kalda, með fondant kartöflum fylltum með steinseljurót, baconkáli og púrtvínssósu
Eftiréttur
Eftirlæti sjókokka eyjanna, Súkkulaðibomba
Súkkulaðitart með exótískum ávöxtumog vanillusýrópi, súkkulaðimús og hvítsúkkulaðikrem
síðustu miðar í sölu hjá Trausta í síma 698-2632 eða trausti@ibv.is