Fótbolti - Styrktarkvöld ÍBV á Spot

23.mar.2010  21:09
Glæsilegur 5 rétta kvöldverður og skemmtun, miðvikudaginn 31. mars(daginn fyrir skírdag) á Spot í Kópavogi,  þar sem Eyjastemmningin mun svífa yfir vötnum. Kokkar m.a. Grímur kokkur, Einsi Kaldi og Siggi í Turninum.

Fram koma ma: Páll Magnússon (veislustjóri), Edda Andrésdóttir, Freyr Eyjólfsson, Ingó Idol, Hljómsveitin Buff, Hoffman, Gylfi Ægis, Bjartmar Guðlaugs og fleiri góðir. Hljómsveitin Tríkot heldur uppi stuðinu fram á morgun.

Hægt er að nálgast miða hjá leikmönnum ÍBV, í síma 515-3270, í Týsheimilinu sími 481-2060 eða senda póst á trausti@ibv.is

Magnað tækifæri til að styrkja ÍBV og fá um leið að upplifa stórglæsilegt kvöld sem seint mun gleymast.

Miðaverð: 10.000 kr fyrir einstakling og 18.000kr. fyrir hjón.