Miðjumaðurinn knái, Guðjón Ólafsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við ÍBV. Guðjón sem er 21 árs hefur verið viðloðandi meistaraflokk félagsins undanfarin ár en varð fyrir því óláni nokkrum dögum fyrir fyrsta leik í fyrra að meiðast illa og missa af öllu tímabilinu.