Úganski landsliðsmaðurinn Tonny Mawejje kemur til landsins á morgun til að hefja undirbúning sinn fyrir komandi tímabil með ÍBV. Hann byrjar af krafti um helgina en ÍBV spilar þrjá æfingaleiki frá föstudegi til sunnudags. Eins verða þetta fyrstu leikir Finns Ólafssonar og Ásgeirs Aron Ásgeirssonar fyrir ÍBV.