Hinn ungi og efnilegi Kjartan Guðjónsson skrifaði á miðvikudag undir nýjan þriggja ára samning við ÍBV. Kjartan kom upp í 2.flokk í fyrra og varð strax einn af lykilmönnum liðsins ásamt því að spila með KFS á síðasta tímabili. Hann var valinn efnilegasti leikmaður KFS á tímabilinu.
Við væntum mikils af Kjartani í framtíðinni. Með Kjartani á myndinni er Örn Hilmisson knattspyrnuráðsmaður sem handsalaði samninginn við kappann.