Knattspyrnuráð hefur lagt mikla áherslu á að geta staðið við skuldbindingar sínar gagnvart leikmönnum félagsins og fögnum því að það tókst. ÍBV á marga dygga stuðningsmenn sem leggja félaginu lið og sá stuðningur hefur haldist að mestu þrátt fyrir erfiða tíma í íslensku samfélagi. Fyrir það eru allir sem koma að félaginu þakklátir.