Fótbolti - Andri með nýjan samning við ÍBV

21.okt.2009  19:14
Andri Ólafsson fyrirliði ÍBV hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Er þetta mikil og góð tíðindi fyrir knattspyrnudeild ÍBV enda hefur Andri þrátt fyrir ungan aldur verið einn af lykilmönnum ÍBV undanfarin ár og var kjörinn leikmaður ársins á nýliðnu sumri. Andri sem er 24 ára hefur á síðustu átta árum leikið 136 leiki fyrir ÍBV og skorað í þeim 18 mörk og er leikjahæsti núverandi leikmaður ÍBV.