Yngri flokkar - Frábær helgi hjá yngri flokkunum

12.okt.2009  20:09
ÍBV tók þátt í þremur fjölliðamótum HSÍ um helgina. Um var að ræða mót sem raðar liðum í deildir. 5.flokkur karla yngra ár sigraði tvo af fjórum og tryggði sér sæti í 1.deild. Stelpurnar í sama aldursflokki áttu að fara á föstudeginum, en sökum veðurs þá komust þær ekki fyrr en á laugardeginum og léku í öðrum styrkleikaflokki. Þær höfðu mikla yfirburði og sigruðu mótið örugglega. Komu heim með gull.
Strákarnir í 6.flokki yngra ár stóðu sig frábærlega. Þeir komust alla leið í úrslitaleik gegn FH, sem FH vann. ÍBV kom því heim með silfur og 1.deildar sæti. Þess má geta að þetta var fyrsta handboltamót sem þessir drengir keppa á. Framtíðin björt hjá ÍBV!