U-19 ára landslið Íslands í knattspyrnu náði jafntefli gegn heimastúlkum í Sviss í dag. Sviss skoraði eftir 3.mínútur en Íslensku stúlkurnar jöfnuðu strax á 8.mínútu. Svisslendingar misnotuðu vítaspyrnu á 88.mínútu leiksins. Kristín Erna byrjaði inná en fór af velli í seinni hálfleik. Elísa Viðarsdóttir kom inná í síðari hálfleik og átti góða innkomu. Síðasti leikur liðsins er gegn Rúmeníu á miðvikudag og þá kemur í ljós hvort liðið komist áfram í milliriðla.