Fótbolti - Gauti skrifar undir þriggja ára samning
18.ágú.2009 14:56
Hinn ungi og efnilegi sóknarmaður ÍBV, Gauti Þorvarðarson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Gauti sem er tvítugur að aldri keppti sinn fyrsta leik fyrir ÍBV í fyrra í 1.deildinni en alls tók hann þátt í sex leikjum á síðasta ári, fjórum í deild og tveimur í bikar. Hann hefur aldeilis minnt á sig á þessu tímabili og hefur spilað tíu leiki í Pepsi-deildinni í sumar auk þess sem hann spilaði einn leik í VISA bikarnum. Hann hefur skorað eitt mark í sumar og var það eitt glæsilegasta mark sumarsins, í 3-1 sigri á Grindavík.
Knattspyrnuráð lýsir yfir mikilli ánægju með þá ákvörðun Gauta að vera áfram í Eyjum. Bindum við vonir við að hann eigi eftir að raða inn mörkum fyrir ÍBV á næstu árum.