Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, mun sýna myndbrot úr undanförnum leikjum á risaskjá og gefa stuðningsmönnum smá innsýn í sitt starf.
Í leiknum mun ÍBV spila í nýjum varabúningum og verður hann kynntur af þessu tilefni.
Tækifærið verður notað til að sýna myndband með laginu „Slor og skítur“ sem hefur verið endurgert með samstarfi leikmanna ÍBV og stórbandsins Hoffmann úr Eyjum.
Steak´n Play býður Eyjamenn sérstaklega velkomna og býður af því tilefni hamborgaratilboð, gos og öl fyrir svanga og þyrsta gesti.
Aðalatriðið er að Eyjamenn hittist, hafi gaman og njóti þess að styðja sitt lið !
Nú er bara að telja niður og verður mæting frá kl. 18 á sunnudag og verður leikurinn flautaður á kl. 20.