Hinn bráðefnilegi miðvörður ÍBV, Eiður Aron Sigurbjörnsson var í dag valinn í U-21 árs landslið Íslands sem mætir Dönum í vináttuleik í Árósum á föstudag. Eiður hefur spilað gríðarlega vel í fyrstu leikjum ÍBV í sumar og átti til að mynda frábæran leik gegn Grindavík í gær. Hann hefur vaxið mikið í miðvarðarstöðunni og er hann án efa einn af framtíðarmönnum ÍBV.
Í dag skrifaði leikmaðurinn svo undir nýjan samning við félagið. Eiður samdi við ÍBV til ársloka 2011.
Mynd: Eyjafréttir