Úrvalsdeildarlið Grindavíkur er nú í æfingaferð í Eyjum en ÍBV og Grindavík munu leika tvo æfingaleiki. Í kvöld, föstudag, leika B-lið félaganna klukkan 18.00 á Helgafellsvellinum. Klukkan 17.00 á morgun, laugardag, mætast svo aðallið félaganna á sama velli og fá stuðningsmenn ÍBV kærkomið tækifæri til að sjá lið ÍBV fyrir átök sumarsins.
Hér að neðan má sá mynd af þremenningunum sem Jón Óskar Þórhallsson tók við komu þeirra til landsins.