Yngri flokkar - ÍBV Íþróttafélag og SmartMedia gera með sér samstarfssamning

20.feb.2009  13:30

ÍBV Íþróttafélag hefur gert samstarfssamning við margmiðlunarfyrirtækið SmartMedia um hönnun og forritun á vefsíðum fyrir ÍBV, Pæjumótið og Shellmótið.
Núverandi vefur ÍBV er kominn til ára sinna og komin tími á endurnýjun og það sama má segja um vef Shellmótsins. ÍBV fór þess á leit við SmartMedia að taka verkið að sér og má búast við því að innan nokkurra vikna opni nýir vefir ÍBV.

Sæþór Orri Guðjónsson framkvæmdastjóri SmartMedia sagði í samtali við ibv.is að það væri heiður fyrir SmartMedia að vinna nýja vefi fyrir ÍBV. Hluti samstarfssamningsins við ÍBV er í formi veglegs afsláttar sem að SmartMedia veitir ÍBV við þessa vinnu og vill SmartMedia koma þannig til móts við ÍBV þar sem erfiðara er í dag en oft áður að fá styrktaraðila til liðs við félagið.