Fótbolti - Tveir sigrar og eitt jafntefli í fótboltanum

19.jan.2009  23:18
Karlalið ÍBV í knattspyrnu spilaði um helgina þrjá æfingaleiki. Fyrst lék aðallið ÍBV gegn Víkingi frá Ólafsvík í gær og unnu Eyjamenn öruggan sigur, 3:0. Bjarni Rúnar Einarsson skoraði fyrsta markið en annar tveggja nýrra framherja ÍBV, Viðar Örn Kjartansson skoraði næstu tvö. Strax á eftir lék svo varalið ÍBV gegn Þrótti Vogum og sigraði 4-3. Guðjón Ólafsson var á skotskónum og setti öll mörk ÍBV. Á sunnudag lék ÍBV við Víking frá Reykjavík og endaði sá leikur 1-1 og það var Viðar Örn Kjartansson sem skoraði mark ÍBV. Næstu æfingaleikir ÍBV verða aðra helgi gegn Haukum og Grindavík.