Á föstudagskvöld var tilkynnt hver væri Íþróttamaður ársins 2008 hjá ÍBV-héraðssambandi. Andri Ólafsson, knattspyrnumaður varð fyrir valinu en Andri var einn af burðarrásum ÍBV-liðsins sem vann 1. deildina síðasta sumar og vann sér um leið sæti í úrvalsdeild. Þá heiðraði Vestmannaeyjabær Íslandsmeistara ársins og landsliðsmenn og veitti auk þess afreksstyrki til aðildarfélaganna.
ÍBV-íþróttafélag
Knattspyrnumaður ársins - Albert Sævarsson
Knattspyrnukona ársins - Saga Huld Helgadóttir
Handknattleiksmaður ársins - Sigurður Bragason.
KFS
Knattspyrnumaður ársins - Stefán Björn Hauksson