Fótbolti - ÍBV á næst flesta fulltrúa í U-19
30.des.2008 19:42
Ólafur Þór Guðbjörnsson landsliðsþjálfari U-19 ára liðs kvenna í knattspyrnu hefur valið þær Þórhildi Ólafsdóttur, Kristínu Ernu Sigurlásdóttur, Sögu Huld Helgudóttur og Elísu Viðarsdóttur til æfinga helgina 2. og 3. Janúar. Aðeins lið Vals hefur fleiri fulltrúa en ÍBV.