Stjórn ÍBV og
Alex Cerdeira leikmaður félagsins hafa komist að samkomulagi um starfslok
leikmannsins. Alex hefur átt við þrálát
meiðsli að stríða síðan um miðjan mars og ljóst að enn er langt í land með að
hann verði tilbúinn í slaginn. Því þótti
það besta lausnin, bæði fyrir leikmanninn sjálfan og ÍBV að hann yfirgefi
félagið og haldi aftur til heimalandsins.
Alex spilaði einn leik fyrir félagið. ÍBV þakkar Alex fyrir framlag sitt
til félagsins og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.