Yngri flokkar - Stefnir í metþátttöku á Pæjumóti

16.apr.2008  10:39

Alls hafa 13 félög verið skráð til leiks í sumar og er það metfjöldi eftir að mótinu var breytt fyrir nokkrum árum síðan. Fjöldi félaga gæti orðið enn meiri þar sem nokkur önnur félög eru að skoða sín mál. Til samanburðar þá voru 9 félög á mótinu í fyrra þannig að óhætt er að segja að mótið er í örum vexti.

Nokkuð ljóst þykir að nýr styrktaraðili verður á mótinu og verður hann kynntur til sögunnar á næstu dögum.