Um síðustu helgi mættust Breiðablik og ÍBV í deildarbikarnum þar sem Breiðarblik sigraði 7 - 0. Í leiknum varð Yngvi Borgþórsson fyrir hnjaski og verður í gipsi næstu 10 daga, en eftir það fer hann í endurmat um hvert framhaldið verður hjá honum. Bein í ristinni brotnaði.