Leik Þórs og ÍBV á Akureyri í kvöld verður lýst beint á netinu á
www.ibvfan.is.
Sverrir Júlíusson, okkar ástkæri leikjalýsir, ákvað að ferðast sjálfur
með Herjólfi og keyra norður til að geta lýst leiknum fyrir
stuðningsmenn Eyjamanna. Sverrir fær að sjálfsögðu mikið hrós fyrir að
leggja þetta á sig, enda hefur hlustunin verið gífurlega góð í þeim
leikjum sem hefur verið lýst, og fólk mjög ánægt með þetta framtak. Í
tilefni þessa ætlar Heimir þjálfari að færa Sverri sleikjó eftir leik í
kvöld, ef Eyjamenn sigra. ÁFRAM ÍBV!