Yngri flokkar - Shellmótið: Steve Coppell mætir á næsta ári

12.júl.2007  10:23
ÍBV hefur ákveðið stytta Shellmótið á næsta ári um einn dag þannig að því ljúki á laugardegi í stað sunnudags en þess í stað þjappa dagskránni betur saman. Að sögn Einars Friðþjófssonar, framkvæmdastjóra Shellmótsins, er undirbúningur fyrir mótið sumarið 2008 þegar hafinn og hefur verið samið við Steve Coppell, knattspyrnustjóra Reading í ensku úrvalsdeildinni að vera heiðursgestur mótsins.

Hann mun m.a. halda fyrirlestur fyrir þjálfara og heilsa upp á peyjana. Ívar Ingimarsson, leikmaður Reading, verður með Coppell í för. Einar segir að breytingarnar á Shellmótinu miðist við breyttar kröfur nútímans en aðallega hefur verið kvartað yfir því að mótið sé of langt. Með þessu fyrirkomulagi geta gestir farið heim þegar á laugardagskvöldi.

Tekið af www.visir.is