Yngri flokkar - SÝN verður á svæðinu

22.jún.2007  16:35
Nú er komið á hreint að upptökumenn á vegum sjónvarpsstöðvarinnar SÝN verða á staðnum á Shellmótinu og munu mynda það er fram fer og taka viðtöl við keppendur og fleiri. Þannig að í fyrra einbeittu SÝN-armenn sér að Landsbankadeildinni og HM í Þýskalandi en í ár verða þeir með fókusinn á Landsbankadeildinni og Shellmótinu. Svo fáum við að sjá afraksturinn af mótinu á skjánum seinna í sumar.