Í dag, sunnudag, klukkan 1500 er komið að því að deildarbikarinn hefjist. Nýliðarnir í efstu deild Breiðablik verða andstæðingar okkar og leikið verður í Fífunni.
Leikmannahópur inniheldur eftirtalda leikmenn:
Hrafn, Guðjón, Davíð Egils. Ingi Rafn, Bjarni Hólm, Bjarni Rúnar, Bjarni Geir, Palli fyrirliði, Arilíus, Jeffsy, Binni, Sævar, Anton, Egill, Sæþór, Hafþór.
Ingi of Davíð eru þegar komnir með leikheimild en heimild Sævars verður vonandi klár í hádeginu í dag
Andri, Adólf, Atli og Pétur Run. eru meiddir Chris er ekki kominn - sem og aðrir útlendingar - Svo eru nokkrir yngri strákar í startholunum og munu þeir fá einhverja leiki á næstunni