Yngri flokkar - ÍBV veitt viðurkenning fyrir grasrótarstarf

19.nóv.2005  01:03


-Grasrótarviðburður ársins 2005 - Shellmótið

ÍBV var á dögunum veitt sérstök viðurkenning fyrir besta grasrótarviðburð ársins 2005 - Shellmót ÍBV, en Shellmótið hefur um árabil verið haldið í Eyjum með miklum glæsibrag.

Það voru fulltrúar KSÍ sem afhentu fulltrúum ÍBV viðurkenninguna á Náttúrugripasafninu í Vestmannaeyjum. Að auki fékk ÍBV að gjöf 50 Adidas-knetti af bestu gerð, sem voru afhentir við sama tækifæri.

Þetta er í annað sinn sem sérstök viðurkenning eins og þessi er veitt fyrir grasrótarviðburð, en í fyrra hlaut Skallagrímur viðurkenninguna fyrir Borgarnesmótið.

Tekið af heimasíðu KSÍ.