Halldór Stefán Haraldsson, landsliðsþjálfari U20 kvenna hjá HSÍ, hefur valið Alexöndru Ósk Viktorsdóttur, Ásdísi Höllu Hjarðar og Birnu Maríu Unnarsdóttur til æfinga 6.-12. apríl nk. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.
Grétar Áki Andersen og Sólveig Lára Kjærnested, landsliðsþjálfarar U18 kvenna hjá HSÍ, hafa valið Agnesi Lilju Styrmisdóttur og Klöru Káradóttur til æfinga 6.-12. apríl nk. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.
Rakel Dögg Bragadóttir og Einar Jónsson, landsliðsþjálfarar U16 kvenna hjá HSÍ, hafa valið Glódísi Dúnu Óðinsdóttur, Siennu Björt Garner og Tönju Harðardóttur til æfinga 9.-12. apríl nk. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.
Sunna Jónsdóttir og Ásdís Sigurðardóttir, landsliðsþjálfarar U15 kvenna hjá HSÍ, hafa valið Erlu Hrönn Unnarsdóttur og Lenu Maríu Magnúsdóttur til æfinga 10.-12. apríl nk. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.
ÍBV óskar stelpunum innilega til hamingju með valið og góðs gengis!