Ágúst Þór Jóhannsson og Maksim Akbachev, landsliðsþjálfarar U20 karla hjá HSÍ, hafa valið Andra Erlingsson og Elís Þór Aðalsteinsson til æfinga 16.-19. mars nk. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon, landsliðsþjálfarar U18 karla hjá HSÍ, hafa valið Anton Frans Sigurðsson, Morgan Goða Garner og Sigurmund Gísla Unnarsson til æfinga 16.-22. mars nk. Æfingarnar fara frama á höfuðborgarsvæðinu.
Ásbjörn Friðriksson og Ólafur Stefánsson, landsliðsþjálfarar U16 karla hjá HSÍ, hafa valið Fannar Inga Gunnarsson til æfinga 19.-22. mars nk. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.
ÍBV óskar peyjunum innilega til hamingju með valið og góðs gengis!