Yngri flokkar - Alexandra, Ásdís, Birna, Agnes, Klara, Sienna, Tanja, Erla, Friðrika og Lena á æfingar hjá HSÍ

23.feb.2026  13:53

Halldór Stefán Haraldsson, landsliðsþjálfari U20 kvenna hjá HSÍ, hefur valið Alexöndru Ósk Viktorsdóttur, Ásdísi Höllu Hjarðar og Birnu Maríu Unnarsdóttur til æfinga 2.-7. mars nk. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.

 

Grétar Áki Andersen og Sólveig Lára Kjærnested, landsliðsþjálfarar U18 kvenna hjá HSÍ, hafa valið Agnesi Lilju Styrmisdóttur og Klöru Káradóttur til æfinga 3.-8. mars nk. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.

 

Rakel Dögg Bragadóttir og Einar Jónsson, landsliðsþjálfarar U16 hjá HSÍ, hafa valið Siennu Björt Garner og Tönju Harðardóttur til æfinga 6.-8. mars nk. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.

 

Ásdís Sigurðardóttir og Sunna Jónsdóttir, landsliðsþjálfarar U15 hjá HSÍ, hafa valið Erlu Hrönn Unnarsdóttur, Friðriku Rut Sigurðardóttur og Lenu Maríu Magnúsdóttur til æfinga 6.-8. mars nk. Æfingarnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu.