Yngri flokkar - Emil Gautason í lokahóp hjá KSÍ

20.feb.2026  09:33

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U16 karla hjá KSÍ, hefur valið Emil Gautason í leikmannahóp til þátttöku í UEFA Development móti sem fram fer í Færeyjum dagana 27. febrúar - 6. mars næstkomandi. Liðið æfir á Íslandi fimmtudaginn 26. febrúar áður en haldið er til Færeyja þann 27. febrúar.

 

ÍBV óskar Emil til hamingju með valið og góðs gengis!