Yngri flokkar - Tanja lék sinn fyrsta landsleik fyrir HSÍ

03.jún.2025  10:13

Um helgina lék Tanja Harðardóttir sinn fyrsta landsleik með U-15 ára landsliði kvenna hjá HSÍ. En stelpurnar léku tvo leiki gegn Færeyjum í Safamýrinni laugardag og sunnudag.

Báðir leikir liðana voru hníf jafnir þar sem fyrri leikurinn endaði með þriggja marka tapi, 24-27 og seinni með eins marks tapi 26-27.

Margar efnilegar stelpur voru að leika sína fyrstu leiki í landsliðstreyjunni og óhætt er að segja að framtíðin sé björt í íslenskum kvenna handbolta.