Yngri flokkar - Emil Gautason á úrtaksæfingar U-15 hjá KSÍ

23.apr.2025  14:25

Ómar Ingi Guðmundsson, landsliðsþjálfari U-15 karla hjá KSÍ, hefur valið Emil Gautason til úrtaksæfinga dagana 5.-7. maí nk. Æfingarnar fara fram á Avis-vellinum, heimavelli Þróttar í Laugardalnum.

 

ÍBV óskar honum innilega til hamingju með valið og óskar honum góðs gengis!