Yngri flokkar - Kristín Klara og Lilja Kristín í lokahóp U-16 hjá KSÍ

11.apr.2025  14:07

Aldís Ylfa Heimisdóttir, landsliðsþjálfari U-16 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Kristínu Klöru Óskarsdóttur og Lilju Kristínu Svansdóttur í lokahóp sem tekur þátt í Development móti sem haldið verður í Eistlandi dagana 28. apríl til 5. maí.

ÍBV óskar þeim innilega til hamingju með valið og óskar þeim góðs gengis!